Annars veit ég ekkert hvað ég á að blogga um. Það gerist eiginlega ekki dick hérna. Fyrir áramót gerðist eftirfarandi:
- Mætti í holuna sem ég bý í hérna í lok ágúst. Ekkert rúm. Fór rakleiðis og keypti dulítinn bjór og svaf á gólfinu.
- Sofnaði á Gullmarsplan í tvo klukkutíma um miðja nótt.
- Fór í sumarbústaðaferð í Osqvik og drakk Bigga undir borðið (reyndar drukku allir hann undir borðið).
- Klofnaði á Kasper í Sigstein ásamt Sigga. Auk þess skutum við okkur í fótinn í lestinni, mökkaðir, með því að spjalla saman um allskonar ógeðslega hluti á íslensku fyrir framan íslenska stelpu. Reyndum að redda okkur út úr því með því að spyrja hana hvernig henni gengi í lögfræðinni. Við höldum að það hafi ekki gengið.
- Sigldi til Riga ásamt nokkrum Íslendingum. Sáum meira af barnum en borginni.
- Fór á EM í handbolta í Þrándheimi í janúar ásamt nokkrum fársjúkum einstaklingum. Mjög skemmtileg ferð - íslensku strákarnir stimpluðu sig rækilega inn og sýndu okkur hvernig á ekki að spila handbolta. Áfram Ísland, meira af þessu! Annars bar það helst til tíðinda í þessari ferð að Biggi gat ekki lært textann við Kyrrlátt kvöld. Raunar náði hann bara fyrstu þremur orðunum réttum, sem er kannski ekki svo slæmt ef litið er til þess að mönnum er ekki kennt að lesa í Verzló. Myndir.
- Fór aftur í sumarbústaðaferð í Osqvik. Prýðileg ferð.
- Sigrún og Erling og Co. fluttu hingað. Alger snilld.
Svo var gamli og góði síminn minn að gefa upp öndina. Keypti mér nýjan sem er mun flottari. Hann kemur með handfrjálsum búnaði og pussy magnet þannig að við Haukur þurfum ekki að örvænta fyrir næstu veiðiferð.
Látum þetta duga í bili. Héðan í frá verður þetta blogg líklega bara eitthvað bull sem fáir skilja.
Hugleiðing dagsins: Til hvers voru Kamikaze flugmenn með hjálma?
9 comments:
Það er ánægjulegt að heyra að þú sért búinn að leysa vandamál okkar beggja við að heilla þær sænsku... annars hefðir þú átt að koma með mér til Helsinki um helgina... þær finnsku eru töluvert tilkippilegri og tala meiraðsegja margar hverjar sænsku sem þær væru innfæddar. Tekur því varla eftir muninum ;-)
Andskotinn. Þú hefðir átt að hringja í mig, ég hefði komið með næstu vél :) Annars tökum við Onsdags á þetta og ræðum aflatölur.
Bara byrjaður að blogga, snilld. Núna ertu kominn í blogghringinn, Beggi().. :)
Jebbs, ert þú með bloggs?
Hvað sé að ske, \begin{blog}? Líst vel á það, enda ekki hollt að vera riðfrír í einrúmi.
Og hvenær skal svo koma í heimsókn? Þú mátt sofa á skallanum undir borði hvenær sem þig lystir...
Kaldar kveðjur frá Íþöku.
P.S. Það er verið að senda mér bæklinga um að vernda frelsið og ganga í bandaríska herinn, á ég ekki bara að láta verða af því?
Já, ég verð einhverntíma að koma og kíkja á alminlegar menntastofnanir.
Kannski það sé hægt að hössla út á skökku tönnina og skallann þarna vesturfrá?
Mér finnst að þú eigir að fara að vinna hjá Micro$oft frekar en að fara í herinn.
Neibbs ekkert blogg.. það fær enginn að vita hvað ég er að gera ;)
OK, keppni um að vera sem minnst skiljanlegur. Anfangen pretend gut zu sein aber ist doch nur Evil.
Velkominn í bloggheima, kæri frændi. Þú verður vonadi dulegur að gefa rapport. Já vel á minnst. Þú skallt skella þér í næstu dónakarlabúð og fá þér eintak af Rapport. Góðar minningar frá Svíþjóð tengi ég við þær bókmenntir.
Post a Comment